Enski boltinn

Harpa skoraði tvö er Stjarnan tryggði sér sigur í Lengjubikarnum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði tvö mörk.
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði tvö mörk. Vísir/Daníel
Íslandsmeistarar Stjörnunnar unnu öruggan sigur á bikarmeisturum Breiðabliks, 3-0, í úrslitaleik A-deildar Lengjubikars kvenna í kvöld en leikið var í Egilshöllinni.

Danka Podovac kom Stjörnunni yfir í leiknum á 31. mínútu í fyrri hálfleik en fleiri mörk voru ekki skoruð í hálfleiknum.

Stjarnan gerði svo út um leikinn með tveimur mörkum í seinni hálfleik en HarpaÞorsteinsdóttir skoraði á 63. og 85. mínútu. Markadrottning síðasta sumars í stuði í kvöld.

Þar sem liðin eru handhafar tveggja stærstu titlanna mætast þau á ný í Meistarakeppni KSÍ á föstudaginn en sá leikur fer fram á Samsung-vellinum í Garðabæ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×