Bíó og sjónvarp

Gæti landað hlutverki í Tupperware-mynd

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Leikkonan Sandra Bullock gæti landað hlutverki í nýrri mynd um konuna sem gerði Tupperware-ílátin fræg um allan heim, Brownie Wise.

Sandra hefur ekki tekið að sér hlutverk síðan hún lék í Óskarsverðlaunamyndinni Gravity en hún nældi sér einmitt í tilnefningu til Óskarsverðlaunanna fyrir þá frammistöðu.

Brownie var fyrsta konan til að prýða forsíðu Business Week árið 1954 en myndin sem er í bígerð er byggð á bókinni Tupperware Unsealed eftir Bob Kealing.

Leikstjóri myndinnar er Tate Taylor en hann leikstýrði meðal annars myndinni The Help. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×