Bíó og sjónvarp

Sjáðu tæknibrellurnar úr The Grand Budapest Hotel

Wes Anderson, sem hefur leikstýrt myndum á borð við The Royal Tenenbaums, The Life Aquatic with Steve Zissou, Moonrise Kingdom, The Grand Budapest Hotel og svo mætti lengi telja hefur sérstakan stíl þegar kemur að kvikmyndum sínum.



Hann notar til að mynda líflegar litapallettur, skrifar handrit um furðulegar fjölskyldur og elskar Bill Murray, svo einhver einkenni séu nefnd.

Nýjasta kvikmynd leikstjórans, The Grand Budapest Hotel, hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur, en tæknibrelluliðið LOOK Effects, sem þjónustuðu kvikmyndina hafa sett stutt myndbrot á netið þar sem þeir sýna hvernig myndefninu var breytt.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×