Körfubolti

Durant hefur verið stöðugastur í vetur

Durant og James.
Durant og James. vísir/getty
Valið um hver sé besti leikmaður tímabilsins stendur á milli tveggja manna - LeBron James og Kevin Durant. Þeir hafa verið í sérflokki í vetur.

James hefur verið valinn besti leikmaður deildarinnar síðustu tvö ár og margir eru á því að Durant eigi skilið að vera valinn í ár.

"Hann er búinn að vera sá stöðugasti í deildinni í vetur," sagði James aðspurður um hvort Durant ætti skilið að vinna í ár.

Durant er nýbúinn að slá glæsilegt met Michael Jordan með því að skora að minnsta kosti 25 stig í 41 leik í röð.

James hefur verið valinn sá besti fjórum sinnum á ferlinum.

"Durant hefur átt frábært tímabil. Ef hann verður valinn bestur þá er það frábært fyrir hann og hans fjölskyldu. Hann hefur átt "MVP" tímabil. Ég er annars lítið að spá í hvað fólk er að segja. Það er hópur fólks sem hefur atkvæðisrétt og það nýtir þann rétt á þann hátt sem það vill."

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×