Fótbolti

Dortmund valtaði yfir Bayern

Leikmenn Dortmund fagna í dag.
Leikmenn Dortmund fagna í dag. vísir/getty
Þó svo þýsku deildinni sé löngu lokið og Bayern orðið meistari þá fengu stuðningsmenn Dortmund ágæta sárabót í dag.

Lið þeirra fór þá á Allianz-völlinn, heimavöll Bayern München, og valtaði yfir meistarana, 0-3. Stærsta tap Bayern frá 2008 og stærsta tap á þjálfaraferli Pep Guardiola.

Henrikh Mkhitaryan, Marco Reus og Jonas Hoffmann á skotskónum fyrir Dortmund í dag.

Neyðarlegt tap fyrir Bayern en liðið þoldi mótlætið illa og Rafinha var rekinn af velli í lokin eftir að hafa misst stjórn á skapi sínu.

Tuttugu stiga munur var á liðunum fyrir leikinn og hann stendur nú í sautján stigum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×