Fótbolti

Zlatan tæpur fyrir seinni leikinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Zlatan meiddist í leiknum í gær.
Zlatan meiddist í leiknum í gær. Vísir/Getty
Óvíst er hvort að Zlatan Ibrahimovic geti spilað með PSG gegn Chelsea í Lundúnum í næstu viku.

Zlatan fór meiddur af velli í 3-1 sigri PSG í leik liðanna í París í gær og mun fara í frekari læknisskoðun í dag.

„Hann vildi halda áfram en mér fannst það ekki skynsamlegt,“ sagði Laurent Blanc, þjálfari PSG, eftir leikinn í gær.

„Hann verður frá í nokkurn tíma. Ég vona að hann komi aftur sem fyrst því við þurfum hann í mikilvægum leikjum sem þessum.“

Jafnvel þó svo að Zlatan sé aðeins tognaður aftan í læri verður hann líklega frá í rúma viku og myndi því missa af leiknum á Stamford Bridge á þriðjudag. Sé vöðvinn rifinn verður hann frá í lengri tíma.


Tengdar fréttir

PSG vann Chelsea 3-1 í París | Myndband

Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain eru með 3-1 forystu gegn Chelsea í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir fyrri leik liðanna í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×