Fótbolti

Meistaramörkin: Atletico og Bayern fóru áfram

Síðustu farmiðarnir í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu voru gefnir út í kvöld. Það voru Bayern og Atletco Madrid sem fengu þá.

Bayern skellti Man. Utd 3-1 og fór áfram 4-2 samanlagt. Atletico lagði aftur á móti Barcelona, 1-0, og fór áfram 2-1 samanlagt.

Bayern, Atletico, Real Madrid og Chelsea verða í pottinum þegar dregið verður í undanúrslit.

Arnar Björnsson krufði leiki kvöldsins með þeim Heimi Guðjónssyni og Reyni Leósson. Meistaramörkin má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×