Bíó og sjónvarp

Leikur drykkjusjúkan danshöfund með sex hjónabönd að baki

Busby Berkeley og Ryan Gosling
Busby Berkeley og Ryan Gosling Vísir/Getty/Getty
Íslandsvinurinn og stórleikarinn Ryan Gosling hefur verið orðaður við aðalhlutverk, og hugsanlega leikstjórn, nýrrar kvikmyndar sem byggð verður á ævi leikstjórans og danshöfundarins Busby Berkeley.

Berkeley, sem lést árið 1976, var þekktur fyrir að semja flókin dansatriði fyrir hópa fyrir einhverjar vinsælustu kvikmyndir á svokölluðu gullskeiði Hollywood. 

Ferill hans spannar yfir fjóra áratugi, en hann samdi dansatriði fyrir kvikmyndir á borð við Gold Diggers of 1933, 42nd Street og leikstýrði þekktum kvikmyndum á borð við Fast and Furious, frá árinu 1939, og Babes on Broadway, árið 1941.

En líf Berkeley var ekki bara dans og söngur. Hann átti sex hjónabönd að baki og var haldinn áfengisfíkn. Þá lenti hann í fjárhagskröggum vegna vangoldinna skatta.

Berkeley var ábyrgur fyrir bílslysi þar sem tveir létust. Hann var ákærður fyrir manndráp af gáleysi, en var sýknaður að lokum.

Myndin er enn á undirbúningsstigi og enginn höfundur hefur verið orðaður við handritið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×