Körfubolti

Sjöunda tap Miami Heaat í ellefu leikjum | Spurs skellti Warriors án lykilmanna

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Heat réð ekkert við Davis
Heat réð ekkert við Davis vísir/ap
Átta leikir voru leiknir í NBA körfuboltanum í Bandaríkjunum í nót. Slakt gengi meistara Miami Heat heldur áfram en liðið tapaði í nótt sjöunda leiknum sínum í ellefu leikjum þegar liðið sótti Pelicans heim í New Orleans.

Anthony Davis fór fyrir Pelicans að vanda en hann skoraði 30 stig, tók 11 fráköst og stal þremur boltum en hann er fyrsti leikmaðurinn í sögu félagsins sem skorar að lágmarki 30 stig ásamt því að taka minnst 10 fráköst í þremur leikjum í röð.

LeBron James skoraði 25 stig fyrir Heat, tók 8 fráköst og gaf 9 stoðsendingar en liðið lék án Dwyane Wade vegna meiðsla.

San Antonio Spurs vann 13. leikinn í röð þegar liðið fór til Oakland í nótt og skellti Golden State Warriors 99-90. Þetta gerði Spurs þrátt fyrir að leika án Tim Duncan og Manu Ginobili.

Breiddin er mikil hjá Spurs en fimm leikmenn skoruðu 15 stig eða meira fyrir liðið. Tony Parker skoraði mest, 20 stig. Tiago Splitter skoraði 17 stig og tók 14 fráköst.

Stephen Curry skoraði 20 stig fyrir Warriors og Klay Thompson 16.

Af öðrum tíðindum næturinnar ber það hæst að Trey Burke tryggði Utah Jazz sigur á Orlando Magic 89-88 með þriggja stiga körfu þegar 1,6 sekúnda var eftir af leiknum. Philadelphia 76ers tapaði 24. leiknum í röð þegar liðið sótti Bulls heim til Chicago og James Harden fór fyrir Dwight Howard lausu Houston Rockets sem lagði Cavaliers í Cleveland. Harden skoraði 37 stig og gaf 11 stoðsendingar.



Úrslit næturinnar:

Charlotte Bobcats – Portland Trail Blazers 124-94

Cleveland Cavaliers – Houston Rockets 111-118

Chicago Bulls – Philadelphia 76ers 91-81

Memphis Grizzlies – Indiana Pacers 82-71

New Orleans Pelicans – Miami Heat 105-95

Utah Jazz – Orlando Magic 89-88

Golden State Warriors – San Antonio Spurs 90-99

Los Angeles Clippers – Detroit Pistons 112-103

Sigurkarfa Trey Burke


NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×