Körfubolti

NBA í nótt: Einu tapi frá versta árangri sögunnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
San Antonio Spurs heldur áfram að gera það gott í NBA-deildinni en liðið vann í nótt sinn fjórtánda sigur í röð.

San Antonio, sem er með bestan árangur allra liða í deildinni, vann Philadelphia, 113-91, sem tapaði þar með sínum 25. leik í röð.

Ef Philadelphia tapar fyrir Houston á fimmtudaginn jafnar liðið NBA-met Cleveland Cavaliers fyrir lengstu taphrinuna. Philadelphia er þó ekki með versta árangur allra liða en Milwaukee hefur unnið fæstu leikina til þessa á tímabilinu.

Austin Daye var með 22 stig fyrir San Antonio í nótt og Tim Duncan nítján. San Antonio gat þar að auki leyft sér að hvíla Tony Parker, Tiago Splitter og Danny Green.

San Antonio er í efsta sæti vesturdeildarinnar með 54 sigra í 70 leikjum. Oklahoma City kemur svo næst með 52 sigra en liðið vann Denver í nótt, 117-96. Kevin Durant skoraði 27 stig fyrir Thunder.

LA Clippers er svo í þriðja sætinu en liðið vann áðurnefnt Milwaukee, 106-98, í nótt. Blake Griffin var með 27 stig og fjórtán fráköst fyrir Clippers.



Það dró svo til tíðinda í toppbaráttu austurdeildarinnar. Meistarar Miami Heat færðu sér tap Indiana gegn Chicago í nyt með því að vinna Portland, 93-91,

LeBron James var með 32 stig, þar af sigurkörfuna þegar rúmar tíu sekúndur voru eftir. Chris Bosh varði svo skot frá Damien Lillard á lokasekúndunum og tryggði þar með sigurinn endanlega. Bosh, sem var með fimmtán stig, hélt upp á 30 ára afmælið sitt í gær.

Lillard var stigahæstur í liði Portland með nítján stig en nýtti aðeins þrjú af fimmtán skotum sínum í leiknum. Mo Williams var með sautján stig.

Indiana tapaði fyrir Chicago, 89-77, þar sem Taj Gibson fór fyrir Bulls-mönnum með 23 stig. Chicago kom með sigrinum í veg fyrir að Indiana næði að tryggja sér sigurinn í sínum riðli.

Indiana er þó enn í efsta sæti austurdeildarinnar, þremur sigurleikjum á undan Miami en þessi tvö lið eru með afgerandi forystu á önnur lið í deildinni. Toronto og Chicago koma svo næst.



Memphis og Phoenix unnu svo mikilvæga sigra í sínum leikjum í nótt og eru í 7. og 8. sæti vesturdeildarinnar. Dallas fylgir þó fast á hæla þeirra og er útlit fyrir spennandi baráttu þeirra um síðustu sætin í úrslitakeppninni á lokaspretti tímabilsins.

Úrslit næturinnar:

Charlotte - Houston 89-100

Atlanta - Phoenix 95-102

Miami - Portland 93-91

Chicago - Indiana 89-77

Memphis - Minnesota 109-92

New Orleans - Brooklyn 109-104

Oklahoma City - Denver 117-96

San Antonio - Philadelphia 113-91

Utah - Detroit 94-114

LA Clippers - Milwaukee 106-98

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×