Lífið

Ofbeldisfull sjónvarpsstjarna

Columbus Short og Kerry Washington, meðleikkona hans í Scandal.
Columbus Short og Kerry Washington, meðleikkona hans í Scandal. Vísir/Getty
Lögregla rannsakar nú áflog sem brutust út á bar í Kaliforníu þann fimmtánda mars síðastliðinn, sem Columbus Short, leikari úr þáttunum vinsælu Scandal, á að hafa verið viðriðinn.

Short og vinir hans voru úti að fagna trúlofun félaga síns, þegar gestur staðarins lét móðgandi ummæli falla um eiginkonu Short. 

Heimildir herma að Short hafi við þetta snöggreiðst og kýlt manninn, sem missti meðvitund og nefbrotnaði við höggið.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Short hefur verið sakaður um að ganga í skrokk á öðrum. Árið 2010 var hann sakaður um að hafa kjálkabrotið mann að nafni Jason Hill á körfuboltaleik, en Hill fékk nálgunarbann á Short í kjölfarið.

Hinn 31. árs leikari er best þekktur fyrir hlutverk sitt sem Harrison Wright í þáttaröðinni Scandal. Hann var einnig dansari fyrir Britney Spears og orðrómar flugu fjöllum hærra fyrir einhverjum árum síðan að hann hefði átt í stuttu ástarsambandi við poppstjörnuna á meðan þau unnu saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×