Fótbolti

Real Madrid er að missa af lestinni

Ronaldo svekktur í kvöld.
Ronaldo svekktur í kvöld. Vísir/Getty
Atletico Madrid komst á topp spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld en nágrannar þeirra í Real misstu aftur á móti af mikilvægum stigum.

Diego Costa var hetja Atletico Madrid enn eina ferðina er hann skoraði eina mark leiksins gegn Granada. Fimmti sigur Atletico í röð.

Real Madrid er að missa af lestinni en liðið tapaði, 2-1, gegn Sevilla í kvöld. Sevilla-liðið á mikilli siglingu en þetta var fjórði sigur liðsins í röð.

Cristiano Ronaldo kom Real yfir með frábæru marki beint úr aukaspyrnu en Carlos Arturo Bacca jafnaði fyrir hlé.

Hann kom Sevilla svo yfir eftir stórkostlegan undirbúning hjá Ivan Rakitic. Hann fíflaði Pepe upp úr skónum, kom boltanum á Bacca sem kláraði dæmið.

Atletico er með 73 stig á toppnum eftir leiki kvöldsins, Barcelona er með 72 stig en Real Madrid er með 70.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×