Bíó og sjónvarp

Snýr aftur í leikstjórastólinn þrátt fyrir slakt gengi

Madonna
Madonna Vísir/Getty
Madonna kemur til með að leikstýra nýrri mynd Adé: A Love story, kvikmynd byggðri á samnefndri skáldsögu eftir Rebeccu Walker. Madonna leikstýrði síðast myndinni W.E., en myndin skilaði hvorki gróða né góðri gagnrýni.

Walker, sem er dóttir höfundar The Color Purple, Alice Walker, gaf út skáldsöguna í fyrra. Sagan fjallar um tvo bandaríska nemendur sem eru að ferðast í Kenýu og ein þeirra verður ástfangin af innfæddum manni, Adé. Hún breytir nafninu sínu og reynir að aðlaga sig nýju lífi við framandi aðstæður.

Myndina framleiðir Bruce Cohen, sem framleiddi hina vinsælu Silver Linings Playbook, en enginn handritshöfundur hefur enn verið orðaður við verkið.

Myndin verður sú þriðja sem Madonna leikstýrir, sú fyrsta var Filth and Wisdom árið 2008 og áðurnefnd W.E. árið 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×