Fótbolti

Barcelona staðfestir komu Halilovic

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alen Halilovic.
Alen Halilovic. Vísir/Getty
Króatíska ungstirnið Alen Halilovic gengur í raðir Barcelona í sumar en hann er einungist sautján ára gamall.

Barcelona greiðir Dinamo Zagreb 2,2 milljónir evra fyrir kappann, um 340 milljónir króna, fyrir kappann en upphæðin hækkar ef hann vinnu sér sæti í aðalliðinu eftir því sem fram kemur á heimasíðu Börsunga.

Halilovic mun fyrst um sinn spila með varaliði Barcelona en hann hefur vakið mikla athygli að undanförnu og verið orðaður við nokkur stórlið í Evrópu, til að mynda Manchester City.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann þegar spilað með A-landsliði Króatíu og verið í stóru hlutverki hjá Dinamo undanfarin tvö ár.

Halilovic verður átján ára gamall þann 18. júní næstkomandi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×