Bíó og sjónvarp

Góðærispartí og gífurleg spenna

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ný stikla úr kvikmyndinni Vonarstræti er komin á netið en myndin er frumsýnd 16. maí.

Leikstjórn er í höndum Baldvins Z og er sögusviðið Reykjavík árið 2006. Í aðalhlutverkum eru Hera Hilmarsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Þorsteinn Bachmann.

Hera leikur vændiskonu í myndinni en karakterinn er byggður á sönnum atburðum eins og leikkonan sagði frá í viðtali við Fréttblaðið fyrir stuttu.

„Við notuðum sögu íslenskrar konu sem er til í raun og veru og ég veit ekki enn þann dag í dag hvort fjölskyldan hennar veit að hún stundaði vændi um tíma,“ sagði Hera.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×