Bíó og sjónvarp

Æfði sig í sex tíma á dag

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Outkast-meðlimurinn Andre 3000 æfði sig mikið til að geta leikið gítargoðsögnina Jimi Hendrix í myndinni Jimi: All Is by My Side en Jimi var, eins og margir vita, örvhentur. Andre er hins vegar rétthentur.

Myndin verður sýnd á South by Southwest-hátíðinni í þessari viku og fer síðan í almennar sýningar í Bandaríkjunum í júní.

„Ég fann þolinmóðan kennara sem setti saman plan fyrir Andre þegar hann kom til Los Angeles. Hann sat í litlu stúdíói sex tíma á dag og æfði sig,“ segir Danny Bramson, framleiðandi myndarinnar. Hann bætir við að aðstandendur myndarinnar hafi eingöngu viljað fá Andre í hlutverkið.

Þótt að tökum sé lokið hefur Andre nóg að gera með sveitinni Outkast. Hún mun koma fram á fjörutíu tónlistarhátíðum á þessu ári, fyrst á Coachella-hátíðinni þann 11. apríl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×