Matur

Stökk berjabaka - UPPSKRIFT

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Matgæðingurinn Dröfn Vilhjálmsdóttir heldur úti blogginu Eldhússögur og deilir uppskrift að gómsætum eftirrétti.

Stökk berjabaka með vanillusósu

500 g frosin berjablanda

1 dl sykur

2 msk. kartöflumjöl

100 g smjör

1 1/2 dl hveiti

1 dl haframjöl

1 dl kókosmjöl

1 dl púðursykur eða sykur

1/2 tsk. lyftiduft

1 tsk. vanillusykur

Ofn hitaður í 200 gráður. Byrjað er á því að þíða berin og setja þau í eldfast mót. Því næst er sykri og kartöflumjöli stráð yfir. Kókosmjöl og haframjöl ristað á þurri pönnu í stutta stund þar til það hefur tekið smá lit. Smjör brætt í potti og kókosmjöli, haframjöli, púðursykri, lyftidufti og vanillusykri blandað út í. Blöndunni er síðan dreift jafnt yfir berin. Bakað í ofni við 200 gráður í 20-30 mínútur eða þar til bakan hefur tekið góðan lit. Borið fram með þeyttum rjóma, ís eða vanillusósu.

Vanillusósa

1 vanillustöng

4 dl mjólk

1 dl sykur

4 eggjarauður

1 tsk. maizenamjöl eða kartöflumjöl

2 dl þeyttur rjómi (mældur eftir að hann er þeyttur)

Eggjarauður, sykur og maizenamjöl (eða kartöflumjöl) þeytt vel saman þar til blandan verður létt og ljós. Á meðan er vanillustöngin klofin og fræin skafin innan úr henni. Mjólk sett í pott ásamt vanillufræjunum og sjálfri vanillustönginni. Mjólkin látin ná suðu (má ekki brenna við botninn), potturinn tekinn af hellunni og látinn standa í nokkrar mínútur til að kólna lítillega. Vanillustöngin veidd upp úr. Þegar eggjablandan er tilbúin er henni blandað út í mjólkina. Potturinn er settur aftur á helluna við meðalhita og hrært í á meðan þar til að blandan þykknar og verður fremur kremkennd. Blandan má alls ekki sjóða og ef maður vill er hægt að fylgjast með henni með hitamæli, hitinn má ekki fara yfir 74 gráður. Þegar sósan er passlega þykk er hún tekin af hellunni og látin kólna alveg áður en þeytta rjómanum er bætt út í. Borin strax fram með heitri berjabökunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.