Fótbolti

Viðar skoraði þrennu gegn Noregsmeisturunum

Viðar fagnar í leik með Selfossi.
Viðar fagnar í leik með Selfossi.
Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson er heldur betur að stimpla sig inn hjá norska liðinu Vålerenga.

Hann skoraði þrennu í dag er liðið gerði sér lítið fyrir og flengdi Noregsmeistara Strömsgodset, 6-1, í æfingaleik.

Lið Vålerenga lítur mjög vel út og hefur verið að spila vel á undirbúningstímabilinu.

Viðar, sem kom til félagsins frá Fylki, hefur verið iðinn við kolann og vonandi heldur hann uppteknum hætti er deildin hefst í lok mánaðarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×