Körfubolti

Lykilmenn meiddir hjá Snæfelli

Stelpurnar meiddar á bekknum í gær.
Stelpurnar meiddar á bekknum í gær. mynd/snæfell
Snæfell vann sannfærandi sigur á Val í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Dominos-deildar kvenna. Leikurinn varð þó dýr fyrir Snæfellsliðið.

Bæði Chynna Brown og Hugrún Eva Valdimarsdóttir meidddust í leiknum og staðan á þeim er alls ekki nógu góð.

Brown mun missa af næstu leikjum og svo gæti farið að hún spili ekki meira með liðinu að því er fram kemur á heimasíðu Snæfells. Hugrún Eva er einnig alvarlega meidd og það kemur í ljós eftir segulómskoðun hversu lengi hún verður frá.

Þetta er alvarlegt mál fyrir Snæfell því ef Brown getur ekki spilað meira þá verður liðið Kanalaust þar sem ekki má skipta um útlending á þessu stigi tímabilsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×