Kristján til bjargar hjá FH Tómas Þór Þórðarso skrifar 17. mars 2014 10:00 Kristján Arason gerði FH að Íslandsmeisturum 2011 og 1992, þá sem spilandi þjálfari. Vísir/Daníel
Kristján Arason, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, er kominn aftur til starfa hjá FH en hann verður í þjálfarateyminu ásamt EinariAndraEinarssyni og Elvari Erlingssyni út tímabilið í Olís-deildinni í handbolta.Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en það var Einar Andri, þjálfari FH, sem fékk Kristján til að koma aftur. Kristján gerði liðið að Íslandsmeisturum 2011 og fór með það aftur í úrslit árið 2012, í bæði skiptin með Einar Andra sem aðstoðarmann sinn. Kristján, sem gerði FH einnig að Íslandsmeisturum sem spilandi þjálfari árið 1992, hætti eftir tímabilið 2012 og tók Einar Andri þá við starfinu. „Einar Andri kom að máli við mig og bar þessa hugmynd upp við mig og ég ákvað að slá til. Mér rann blóðið til skyldunnar enda hefur FH skipað stóran sess í mínu lífi og fjölskyldunni og vonandi get ég lagt mitt af mörkum til þess að FH komist í úrslitakeppnina. Þetta er ögrandi verkefni,“ segir Kristján við Morgunblaðið. FH, sem hefur verið fastagestur í úrslitakeppninni undanfarin fjögur tímabil, er jafnlangt frá fallbaráttunni og sæti í úrslitakeppninni þegar fjórar umferðir eru eftir. Hafnafjarðarliðið er með 15 stig í sjötta sæti deildarinnar, þremur stigum frá Fram sem er í fjórða sætinu og þremur stigum á undan Akureyringum sem eru í sjöunda sæti, umspilssæti um áframhaldandi veru í Olís-deildinni. FH-ingar hafa tapað sjö af síðustu átta leikjum sínum í deildinni.Einar Andri fær lærimeistara sinn aftur á hliðarlínuna með sér.Vísir/Daníel
Olís-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: FH - ÍBV 27-30 | Eyjamenn áfram á siglingu ÍBV vann FH 30-27 í hörkuleik í Olís deild karla í handbolta í kvöld. ÍBV er í öðru sæti, þremur stigum á eftir Haukum en FH er í sjötta sæti og þremur stigum frá fjórða sæti deildarinnar. 13. mars 2014 03:18 Mest lesið Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Enski boltinn Eygló ætlar að vinna Ólympíugull: „Ég hlýði bara Vésteini“ Sport Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna Fótbolti „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum Enski boltinn Fram einum sigri frá úrslitum Handbolti Maður leiksins fékk lifandi lamb í verðlaun Fótbolti Enduðu fimmtán leikja taphrinu í úrslitakeppni NBA Körfubolti Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Enski boltinn Fleiri fréttir Selfoss jafnaði metin Fram einum sigri frá úrslitum Höfðu betur eftir framlengdan leik Aldís Ásta og stöllur einum sigri frá úrslitunum Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Myndasyrpa: Tryggðu HM-sætið og kvöddu Steinunni Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: FH - ÍBV 27-30 | Eyjamenn áfram á siglingu ÍBV vann FH 30-27 í hörkuleik í Olís deild karla í handbolta í kvöld. ÍBV er í öðru sæti, þremur stigum á eftir Haukum en FH er í sjötta sæti og þremur stigum frá fjórða sæti deildarinnar. 13. mars 2014 03:18