Körfubolti

Chynna Brown ekki með Snæfelli í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Chynna Unique Brown.
Chynna Unique Brown. Vísir/Stefán
Chynna Unique Brown og Hugrún Eva Valdimarsdóttir verða ekki með Snæfelli í kvöld þegar liðið mætir Val í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Dominos-deildar kvenna í körfubolta. Þetta kemur fram á heimasíðu Snæfells.

Chynna Unique Brown og Hugrún Eva Valdimarsdóttir meiddust báðar í leik eitt sem Snæfell vann 95-84. Chynna hefur verið frábær með Snæfelli í vetur og hefur verið algjör lykilmanneskja í sautján leikja sigurgöngu liðsins í Dominos-deildinni.

„Heimasíðan heyrði í Inga Þór rétt í þessu og sagði hann að ástand leikmannanna væri það sama og í gær. Mikil óvissa er um framhaldið og allir séu að leggja sitt að mörkum til að láta batann vera góðan. Chynna er byrjuð í meðferð við sínum meiðslum en Hugrún kemst vonandi í segulómskoðun sem fyrst, áður en það gerist er ekkert hægt að gera nema bíða og sjá," segir í frétt á Snæfellssíðunni.

Leikur Vals og Snæfells fer fram í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda í kvöld og hefst klukkan 19.15. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×