Bíó og sjónvarp

Stjörnum prýtt fyrsta sýnishorn úr The Giver

Fyrsta sýnishornið úr kvikmyndinni The Giver hefur verið gefið út.

Í myndinni leika Brenton Thwaites, Jeff Bridges og Meryl Streep en í stiklunni má einnig sjá Katie Holmes, Alexander Skarsgard og Taylor Swift bregða fyrir.

Myndinni er leikstýrt af Phillip Noyce sem hefur þegar leikstýrt myndum á borð við Dead Calm og Patriot Games, en hún er væntanleg í kvikmyndahús vestanhafs í ágúst.

Myndin byggir á barnabókinni The Giver eftir Lois Lowry, frá árinu 1993.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×