Körfubolti

Kraftaverkakonan Brown spilaði og Snæfell vann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Chynna Brown í leik gegn Val fyrr í vetur.
Chynna Brown í leik gegn Val fyrr í vetur. Vísir/Valli
Chynna Brown var óvænt í liði Snæfells sem er aftur komið í foyrstu í undanúrslitarimmu liðsins gegn Val í úrslitakeppni Domino's-deildar kvenna. Snæfell vann leik liðanna í Stykkishólmi í kvöld, 81-67.

Brown meiddist í fyrsta leik liðanna og voru þjálfarar liðanna ekki bjartsýnir um að hún gæti spilað meira í úrslitakeppninni - hvað þá í þessum leik. „Það þarf kraftaverk til þess,“ sagði aðstoðarþjálfarinn Baldur Þorleifsson við Vísi í gær.

Brown byrjaði á bekknum en kom inn á eftir rúmar fjórar mínútur, þegar Valur var í 9-7 forystu. Snæfell gekk á lagið og komst á 11-2 sprett. Heimamenn létu forystuna aldrei af hendi eftir þetta.

Brown skoraði sextán stig og tók tólf fráköst á tæpum 23 mínútum en stigahæst var Hildur Björg Kjartansdóttir með 25 stig. Hún tók einnig níu fráköst.

Anna Martin skoraði 21 stig fyrir Val og Unnur Lára Ásgeirsdóttir þrettán.

Snæfell leiðir nú í einvíginu, 2-1, en liðin mætast næst á föstudagskvöldið.

Snæfell-Valur 81-67 (20-13, 27-17, 19-18, 15-19)

Snæfell: Hildur Björg Kjartansdóttir 25/9 fráköst, Chynna Unique Brown 16/12 fráköst, Hildur Sigurðardóttir 15/6 fráköst/9 stoðsendingar, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 10/11 fráköst, Eva Margrét Kristjánsdóttir 7, Alda Leif Jónsdóttir 5, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 3.

Valur: Anna Alys Martin 21, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 13, Ragnheiður Benónísdóttir 8/5 fráköst, María Björnsdóttir 6, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 6/8 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 5, Hallveig Jónsdóttir 5, Guðbjörg Sverrisdóttir 3/5 fráköst/6 stoðsendingar, Þórunn Bjarnadóttir 0/5 fráköst.


Tengdar fréttir

Lykilmenn meiddir hjá Snæfelli

Snæfell vann sannfærandi sigur á Val í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Dominos-deildar kvenna. Leikurinn varð þó dýr fyrir Snæfellsliðið.

Tímabilið líklega búið hjá Brown

Deildarmeistarar Snæfells verða líklega án hinnar bandarísku Chynnu Brown, sem meiddist strax í fyrsta leik úrslitakeppninnar, þegar liðið mætir Val í þriðja leik undanúrslitarimmu liðanna klukkan 19.15 í kvöld.

Chynna Brown ekki með Snæfelli í kvöld

Chynna Unique Brown og Hugrún Eva Valdimarsdóttir verða ekki með Snæfelli í kvöld þegar liðið mætir Val í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Dominos-deildar kvenna í körfubolta. Þetta kemur fram á heimasíðu Snæfells.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×