Bíó og sjónvarp

Chris Evans hengir upp skikkjuna

Chris Evans
Chris Evans Vísir/Getty
Hinn 32 ára leikari, Chris Evans, lét hafa eftir sér í viðtali við glanstímaritið Glamour að hann ætli að draga sig í hlé frá leiklist.

„Ég held að þegar ég er búin með þennan Marvel-samning, komi ég til með að taka mér smá tíma fyrir mig,“ segir Evans í viðtalinu, en hann leikur Captain America í myndum Marvels.

„Þegar maður er að leika er maður eitt púsl í stóru púsluspili. Það er eins og þú hafir hjálpað til við að kaupa gjöf, en þú veist ekki hver gjöfin er, þannig að maður fer og horfir á myndina. Stundum er það fínt, stundum er það hryllingur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×