Bíó og sjónvarp

Conan kynnir MTV-kvikmyndaverðlaunin

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Spjallþáttastjórnandinn Conan O'Brien verður kynnir á MTV-kvikmyndaverðlaununum sem fara fram sunnudaginn 13. apríl í Los Angeles.

Conan, sem stjórnar spjallþættinum Conan á sjónvarpsstöðinni TBS, fetar þannig í fótspor grínleikkonunnar Rebel Wilson sem var kynnir í fyrra. Aðrar stjörnur sem hafa verið kynnar á hátíðinni í gegnum tíðina eru Russell Brand, Jason Sudeikis, Jimmy Fallon og Andy Samberg.

Tilnefningar til verðlaunanna verða tilkynntar á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×