Fótbolti

Rúrik og Ari byrjuðu báðir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúrik Gíslason.
Rúrik Gíslason. Vísir/Getty
Ari Freyr Skúlason og Rúrik Gíslason voru báðir í byrjunarliðinu þegar lið þeirra, OB og FC Kaupmannahöfn, leiddu saman hesta sína í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

FCK hafði betur 1-0 með marki Igors Vetokele og situr eftir leikinn í 3. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar, fimm stigum á eftir toppliði FC Midtjylland. Rúrik var skipt af velli eftir um klukkutíma leik.

Ari spilaði allan leikinn fyrir OB sem er í 8. sæti, en hann hefur verið fastamaður í byrjunarliðinu síðan hann kom til OB frá GIF Sundsvall í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×