Lífið

Kærður fyrir að nefbrjóta aðdáanda

Ugla Egilsdóttir. skrifar
Chris Brown.
Chris Brown.
Chris Brown á yfir höfði sér málsókn fyrir að, að því er fullyrt er, nefbrjóta æstan aðdáanda sem reyndi að troða sér inn á mynd með honum. Chris Brown stillti sér upp á mynd með tveimur konum fyrir utan glæsihótel í Kaliforníu þegar Parker Adams reitti hann til reiði með því að lauma sér inn á myndina.

Parker heldur því fram að Chris Brown hafi bæði nefbrotið sig og kallað hómófóbískum ókvæðisorðum að sér. Parker er búinn að kæra Chris og krefst um 340 milljóna íslenskra króna í skaðabætur samtals frá Chris og lífverði hans. Chris Brown sækir nú meðferð við reiðistjórnun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.