Bíó og sjónvarp

Vill leika illmennið í Bond

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Stórleikarinn John Travolta sækist eftir því að leika illmennið í næstu kvikmynd um njósnarann James Bond.

„Það verður farin ný leið með illmennið í 007-seríunni. Ég er búinn að tala við framleiðandann Barböru Broccoli um það og hún elskar hugmyndina mína þannig að það væri frábært,“ segir leikarinn í viðtali við The Telegraph.

Framleiðendur myndarinnar vilja þó ekki gefa upp hvort John sé líklegur til að hreppa hlutverkið á þessari stundu.

Nýjasta Bond-myndin mun skarta Daniel Craig í aðalhlutverkinu og verður leikstjórn í höndum Sam Mendes. Myndin er væntanleg í kvikmyndahús vestan hafs þann 6. nóvember á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×