Bíó og sjónvarp

Johnny Depp leikur vísindamann

Stórleikurunum Morgan Freeman og Johnny Depp bregður fyrir í nýju sýnishorni úr kvikmyndinni Transcendence.

Depp leikur dr. Will Caster, vísindamann sem vinnur að því að búa til vél sem á að verða greindari en manneskja.

Transcendence verður frumsýnd vestanhafs um miðjan apríl. Henni er leikstýrt af Wally Pfister, sem er best þekktur fyrir tökustjórn á myndum Cristophers Nolan.

Sjón er sögu ríkari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×