Bíó og sjónvarp

Sýnishorn úr nýjustu mynd Angelinu Jolie

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sýnishorn úr kvikmyndinni Unbroken, í leikstjórn Angelinu Jolie, er komið á netið. Í sýnishorninu er atriðum úr myndinni blandað saman við gömul myndskeið og er Tom Brokaw í hlutverki þuls.

Myndin fjallar um ótrúlegt líf Louis Zamperini, sem leikinn er af Jack O'Connell. Louis er 96 ára í dag og er fyrrverandi hlaupari og stríðsfangi. Hann lifði af á fleka í 47 daga í seinni heimsstyrjöldinni og var sendur í fangelsi Japana í kjölfarið.

Myndin er væntanleg í kvikmyndahús vestan hafs á jóladag.

Angelina og maður hennar, Brad Pitt, á BAFTA-verðlaununum í gærkvöldi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×