Viðskipti erlent

Noregur leyfir olíuleit á 73 gráðum norður

Kristján Már Unnarsson skrifar
Sérleyfisblokkirnar sem áformað er að bjóða út norður af Noregi eru merktar með bleikum lit.
Sérleyfisblokkirnar sem áformað er að bjóða út norður af Noregi eru merktar með bleikum lit. Kort/Olíustofnun Noregs.

Olíu- og orkumálaráðuneyti Noregs hefur tilkynnt að næsta útboð sérleyfa til olíuleitar og olíuvinnslu, hið 23. í röðinni, hefjist á fyrsta fjórðungi þessa árs. Mesta athygli vekur að áformað er að bjóða út olíuleyfi norðar og austar en nokkru sinni áður í norsku lögsögunni, eða á 73. breiddargráðu, við rússnesku lögsögumörkin í Barentshafi. Þetta er álíka norðarlega og Bjarnarey og fiskverndarsvæðið við Svalbarða.

Til samanburðar má geta þess að nyrstu bæir á meginlandi Noregs, Honningsvåg og Hammerfest, liggja á 70. gráðu norðlægrar breiddar. Nyrstu byggðir Íslands, eins og Grímsey og Raufarhöfn, liggja á 66 gráðum norður. Drekasvæðið, sem íslensk stjórnvöld hafa boðið út til olíuvinnslu, liggur á milli 67. og 69. breiddargráðu.


Tengdar fréttir

Olíuleitin hafin við Austur-Grænland

Olíurisar eins og Shell, Statoil, BP, Chevron og Conoco Philips eru meðal níu olíufélaga sem Grænlendingar úthlutuðu nýjum sérleyfum á föstudag. Akureyri og Eyjafjörður vilja bita af kökunni.

Björgunarmiðstöð verði á Bjarnarey

Einn helsti áhrifamaður olíugeirans í Norður Noregi hvetur norsk stjórnvöld til að gera Bjarnarey að björgunarmiðstöð vegna olíuleitar í Barentshafi

Statoil borar nyrstu brunna Norðurslóða

Tvær holur sem norska ríkisolíufélagið Statoil borar í vor í Barentshafi á svokölluðu Hoop-svæði, um 350 kílómetra norðan Hammerfest, verða nyrstu olíubrunnar á jörðinni til þessa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×