Bíó og sjónvarp

Er þetta risakolkrabbi?

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ný stikla úr kvikmyndinni 22 Jump Street er komin á netið. Í henni fara aðalleikararnir Channing Tatum og Jonah Hill á kostum en sá síðarnefndi lendir í árás þar sem skrýtið dýr kemur við sögu sem er hugsanlega risakolkrabbi.

Myndin er væntanleg í kvikmyndahús vestan hafs í sumar og er framhald hinnar gríðarlega vinsælu 21 Jump Street sem var frumsýnd árið 2012.

Myndirnar eru byggðar á sjónvarpsseríunni 21 Jump Street sem naut mikilla vinsælda seint á níunda áratug síðustu aldar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×