Fótbolti

Barcelona á leið í úrslit gegn Real Madrid

Leikmenn Barca fagna marki Busquets í kvöld.
Leikmenn Barca fagna marki Busquets í kvöld. vísir/getty
Það stefnir allt í draumaúrslitaleik í spænska bikarnum á milli Barcelona og Real Madrid. Fyrri leikir undanúrslitanna fóru fram í kvöld.

Real Madrid vann nágranna sína í Atletico Madrid, 3-0, fyrr í kvöld og nú var Barcelona að leggja Real Sociedad af velli, 2-0.

Sergio Busquets var aldrei þessu vant á skotskónum fyrir Barcelona en hann kom liðinu yfir rétt fyrir leikhlé.

Zubikarai varð svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark hálftíma fyrir leikslok.

Síðari leikirnir fara fram eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×