Bíó og sjónvarp

James leikur James

James Franco leikur í hinni væntanlegu Maladies.

Í myndinni leikur hann leikara, sem heitir James, eins og hann sjálfur.

Nýtt sýnishorn úr myndinni afhjúpar sögu leikarans, sem leikur þó ekki lengur, en hefur snúið sér að öðrum verkefnum sem hafa gengið misilla.

Í myndinni er andleg heilsa aðalpersónunnar skoðuð og sambönd hans við vini og fjölskyldu þegar hann flytur aftur heim, í smábæ í Bandaríkjunum.

Í myndinni leika einnig Catherine Keener, Fallon Goodson og Alan Cumming. Myndin er væntanleg í kvikmyndahús vestanhafs í mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×