Körfubolti

Sjáðu ótrúlega sigurtroðslu Orlando

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Harris fær faðmlag frá Glen Davis.
Harris fær faðmlag frá Glen Davis. Vísir/AP
Tobias Harris sá fyrir mögnuðum sigri Orlando á besta liði NBA-deildarinnar, Oklahoma City, með troðslu á lokasekúndu leik liðanna í nótt.

Eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi mátti það varla tæpara standa en Orlando komst í sókn eftir að Kevin Durant hafði brennt af skoti í lokasókn Oklahoma City.

„Ég sá Victor [Oladipo] ná frákastinu og vildi bara koma mér fram, hvort sem er til að gera eitthvað eða óska honum til hamingju. Bara eitthvað,“ sagði Harris sem fékk stoðsendingu frá Maurice Harkless fyrir troðsluna.

„En hann kom boltanum á Mo og ég hélt bara áfram að hlaupa. Mo sá mig og það eina sem skipti mig máli var að koma boltanum í körfuna.“

Troðsla Harris tryggði Orlando eins stigs sigur, 103-102.



NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×