Fótbolti

Fyrsti sigur Dortmund síðan í lok nóvember

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pierre-Emerick Aubameyang fagnaði sigurmarki sínu með heljarstökki.
Pierre-Emerick Aubameyang fagnaði sigurmarki sínu með heljarstökki. Vísir/NordicPhotos/Getty
Pierre-Emerick Aubameyang skoraði bæði mörk Borussia Dortmund þegar liðið vann 2-1 útisigur á Eintracht Braunschweig í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Borussia Dortmund hafði ekki unnið í þýsku deildinni síðan 30. nóvember og á sama tíma var Bayern Münhcen búið að stinga liðið af í baráttunni um þýska meistaratitilinn.

Pierre-Emerick Aubameyang skoraði mörkin sín á 31. mínútu og 65. mínútu en Benjamin Kessel jafnaði fyrir Eintracht Braunschweig í millitíðinni.

Aubameyang kom vel út í nýrri stöðu á hægri vængnum en hann leysti þar af Pólverjann Jakub Blaszczykowski sem sleit krossband í síðustu viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×