Bíó og sjónvarp

Fegurðardísin Margot Robbie í nýrri mynd

Fegurðardísin Margot Robbie heillaði marga í kvikmyndinni The Wolf of Wall Street
Fegurðardísin Margot Robbie heillaði marga í kvikmyndinni The Wolf of Wall Street Nordicphotos/getty
Ástralska leikkonan Margot Robbie sem heillaði heiminn með stórkostlegum leik sínum í kvikmyndinni The Wolf of Wall Street hefur nú gengið til liðs við þá Chris Pine og Chiwetel Ejifor í kvikmyndinni Z for Zachariah.

Hún mun fara með hlutverk Ann en Amanda Seyfried átti áður að fara með það hlutverk. Kvikmyndin er framleidd af þeim Þóri Sigurjónssyni, Skúla Malmquist, Sigurjóni Sighvatssyni og Tobey Maguire, sem er líklega best þekktur sem Spider Man.

Craig Zobel leikstýrir myndinni en hún er byggð á samnefndri bók eftir Robert C. O´Brian frá árinu 1973. Áætlað er að tökur á myndinni hefjist á næstu dögum.

Hin 23 ára gamla Margot Robbie sem er upphaflega þekkt fyrir fegurð sína og leik í Nágrönnum er einnig orðuð við eitt aðalhlutverkanna í myndinni um Tarzan, ásamt True Blood stjörnunni Alexander Skarsgard.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×