Sport

Tom Brady ætlar ekki að horfa á Super Bowl

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tom Brady.
Tom Brady. Vísir/AP
Tom Brady, leikstjórnandi New England Patriots, var einum leik frá því að komast í Super Bowl, úrslitaleik NFL-deildarinnar, en lið hans tapaði á móti Denver Broncos í úrslitaleik Ameríkudeildarinnar um síðustu helgi.

Tom Brady hefur spilað fimm sinnum í Super Bowl á ferlinum og varð NFL-meistari 2002, 2004 og 2005. Hann hefur hinsvegar engan áhuga á því hvernig fer á milli Denver Broncos og Seattle Seahawks um þar næstu helgi.

„Ef ég segi alveg eins og er þá hef ég ekki mikinn áhuga á þessum leik. Það er erfitt að horfa á svona leiki og ég sé mig ekki fyrir mér setjast í sófann til að horfa á þennan fótboltaleik. Tímabilið okkar er búið og mér gæti ekki verið meira sama um þennan leik," sagði Tom Brady.

Um 71 prósent Bandaríkjamanna horfa á úrslitaleik ameríska fótboltans og þetta er stærsti sjónvarpsviðburður í Bandaríkjunum á hverju ári.

Þetta var mjög erfitt tímabil fyrir Tom Brady og félaga enda var liðið óheppið í leikmannamálum sínum og það voru ekki mörg vopn sem stóðu honum til boða í lokaleiknum. Brady gerði frábæra hluti að koma Patriots-liðinu alla leið í úrslitaleik Ameríkudeildarinnar en þar kom í ljós hvað vantaði í liðið.

Vísir/NordicPhotos/Getty
Vísir/NordicPhotos/Getty
Vísir/NordicPhotos/Getty
Vísir/NordicPhotos/Getty
NFL

Tengdar fréttir

Seattle mætir Denver í Ofurskálinni | Myndband

Sterkasta varnarlið NFL-deildarinnar, Seattle Seahawks, tryggði sér í nótt sæti í leiknum um Ofurskálina (e. Superbowl) eftir 23-17 sigur á erkifjendunum í San Francisco 49ers í úrslitaleik Þjóðardeildarinnar.

Brady áhorfandi í sýningu Manning og félaga

Peyton Manning og félagar í Denver Broncos eru komnir alla leið í Super Bowl, leikinn um Ofurskálina í ameríska fótboltanum, eftir 26-16 sigur á New England Patriots í úrslitaleik Þjóðardeildarinnar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×