Bíó og sjónvarp

Litlar líkur á Óskarsjafntefli

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
12 Years a Slave og Gravity eru meðal þeirra níu kvikmynda sem tilnefndar eru í flokki bestu myndar.
12 Years a Slave og Gravity eru meðal þeirra níu kvikmynda sem tilnefndar eru í flokki bestu myndar.
Kvikmyndirnar 12 Years a Slave og Gravity skildu jafnar á verðlaunaafhendingu bandarískra kvikmyndaframleiðenda um helgina, en þetta er í fyrsta sinn í 25 ára sögu verðlaunanna sem það gerist.

Ben Zauzmer, blaðamaður The Hollywood Reporter og stærðfræðingur frá Harvard, telur þó litlar líkur á að það sama verði upp á teningnum þegar veitt verða verðlaun fyrir bestu kvikmynd á Óskarsverðlaununum þann 2. febrúar. Það er þó ekki óhugsandi.

Í grein Zauzmer kemur fram að Óskarsakademían innihaldi 6.028 kosningabæra menn og konur. Þar sem sú tala er slétt er í raun möguleiki á að tvær kvikmyndir fái jafn mörg atkvæði. Ef 6 þúsund greiða atkvæði eru líkurnar á jafntefli aðeins 0,52 prósent.

Jafntefli hefur komið upp sex sinnum í öðrum flokkum á Óskarnum, og má þar nefna jafntefli þeirra Katherine Hepburn og Börbru Streisand í flokki bestu aðalleikkvenna árið 1969. Þá var jafntefli í fyrra á milli kvikmyndanna Zero Dark Thirty og Skyfall í flokki bestu hljóðklippingar.

En hverjar eru líkurnar á að jafntefli komi upp á framleiðendaverðlaununum og Óskarsverðlununum sama ár? 37.702 á móti einum, segir stærðfræðingurinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×