Harmageddon

Styður afglæpavæðingu fíkniefna ef fram koma rök

Andri Þór Sturluson skrifar
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
Þó sumir myndu segja það að Kristján Þór Júlíusson hefði tapað í ráðherrastólalottóinu þá er hann sjálfur ekki á því máli. Aðspurður hvar mest þurfi að taka til hendinni segir Kristján að það þurfi einhvern veginn að fá meiri og betri þjónustu fyrir sama pening innan heilbrigðiskerfisins.

„Við þurfum einhvern veginn að reyna að breyta verklaginu okkar í heilbrigðisþjónustunni í þá veru að við getum þjónað fleirum fyrir sömu krónur og við gerum í dag.“

Ráðherra ræðir menntun heilbrigðisstarfsmanna, hversu alvarlega ríkið tekur áfengis- og vímuefnavandann og hann segist styðja afglæpavæðingu fíkniefna ef fram koma nægilega góð rök.

Áhugafólk um heilbrigðiskerfið og þeir sem vilja vita skoðanir heilbrigðisráðherra á afglæpavæðingu geta hlustað á viðtalið við hann hér.



×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.