Körfubolti

Snæfellingur vann þriggja stiga keppnina

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Chynna Unique Brown.
Chynna Unique Brown. Vísir/Stefán
Chynna Unique Brown, leikmaður Snæfells í Stykkishólmi, hafði sigur í þriggja stiga keppninni á Stjörnuleikshátíð KKÍ sem stendur yfir að Ásvöllum í Hafnarfirði.

Brown hafði sigur í úrslitum keppninnar gegn Lele Hardy úr Haukum og Söru Dögg Margeirsdóttur úr Njarðvík að því er Karfan.is greinir frá.

Brown fékk 12 stig í lokaumferðinni í úrslitunum en Sara Dögg og Hardy átta stig.

Stjörnuleiknum í kvennaflokki er nýlokið með sigri Domino's-liðsins á Icelandair-liðinu 86-85. Þar fór Brown fyrir sigurliðinu með 23 stig, sjö fráköst og 3 stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×