Fótbolti

Blaszczykowski með slitið krossband

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Það var strax ljóst að meiðslin voru alvarleg
Það var strax ljóst að meiðslin voru alvarleg Mynd/Getty
Kantmaðurinn Jakub Blaszczykowski hjá þýska stórliðinu Borussia Dortmund tilkynnti í dag á Fésbókarsíðu sinni að hann sé með slitið krossband en hann meiddist á hægra hné í 2-2 jafntefli gegn Ausburg í gær.

Blaszczykowski meiddist strax á annarri mínútu leiksins og var skipt af leikvelli fjórum mínútum síðar.

Blaszczykowski fór í rannsókn í kjölfar leiksins og nú er ljóst að hann leikur ekki meira með liðinu á tímabilinu.

„Því miður hefur grunurinn verið staðfestur, þetta er krossband. Ég fer í aðgerð á fimmtudaginn og þá hefst endurhæfingin,“ sagði þessi fyrirliði pólska landsliðsins á Fésbókinni sinni.

Ekki hefur gengið sem skyldi hjá Dortmund á leiktíðinni en liðið er í þriðja sæti deildarinnar með 33 stig í 18 leikjum, 14 stigum á eftir toppliði Bayern Munchen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×