Enski boltinn

Xavi: Ég fer ekki frá Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Xavi Hernandez, leikmaður Barcelona.
Xavi Hernandez, leikmaður Barcelona. Vísir/Getty
Spánverjinn Xavi Hernandez segir ekkert hæft í þeim sögusögnum að hann sé mögulega á leið til Bandaríkjanna eða Katar.

„Ég vil klára ferilinn minn hjá Barcelona,“ sagði Xavi sem er 34 ára gamall og hefur verið hjá Börsungum allan sinn knattspyrnuferil. „Ég er ekki á leið til Katar eða Bandaríkjanna.“

„Hér kem ég að góðu gagni og er mikilvægur. Ég á margar minningar héðan og ég hef unnið marga titla með þessari kynslóð af knattspyrnumönnum. Við höfum virkilega notið þessa tíma,“ bætti hann við en Xavi hafði verið orðaður við New York Red Bulls í Bandaríkjunum.

Gerardo Martino tók við starfi knattspyrnustjóra fyrir tímabilið og Xavi er ánægður með kappann. „Tata hefur unnið ótrúlegt starf með liðið,“ sagði Xavi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×