Bíó og sjónvarp

Lana Del Rey í nýjustu kvikmynd Disney

Lana Del Rey
Lana Del Rey AFP/NordicPhotos
Lana Del Rey var fengin til þess að syngja lag í nýjustu Disney-kvikmyndinni Maleficent, sem skartar Angelinu Jolie og Elle Fanning í aðalhlutverkum.

Del Rey syngur lagið Once Upon a Dream úr ævintýrinu um Þyrnirós.

Nýjasta stiklan úr myndinni fylgir hér að neðan, en hún var frumsýnd á Grammy verðlaununum í gær.

Myndin verður frumsýnd í kvikmyndahúsum vestanhafs í vor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×