Bíó og sjónvarp

Stikla úr nýjustu kvikmynd Nicolas Cage

Fréttinni fylgir nýjasta stiklan úr kvikmyndinni Joe, sem leikstýrt er af David Gordon Green og er byggð á skáldsögu eftir Larry Brown.

Joe segir frá fyrrverandi glæpamanni sem tekur ungan flakkara að sér. Hann kemst svo að því að forráðamaður drengsins hafði misnotað hann um langt skeið.

Kvikmyndin hlaut góðar viðtökur á kvikmyndahátíðinni í Toronto í Kanada í fyrra, en enn hefur ekki verið gefið út hvenær myndin fer í kvikmyndahús í Bandaríkjunum.

Nicolas Cage leikur aðalhlutverkið.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×