Bíó og sjónvarp

Netflix vill meira Lilyhammer

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Netflix er búið að ganga frá samningum um að framleiða þriðju seríu af sjónvarpsþáttunum Lilyhammer.

Þættirnir hafa ekki notið jafn mikillar velgengni og aðrir Netflix-þættir á borð við Orange is the New Black og House of Cards en hafa samt sem áður fengið prýðisdóma víðs vegar um heim.

Ekki er ljóst hvenær þriðja serían fer í loftið en í aðalhlutverki er Íslandsvinurinn Steve Van Zandt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×