Bíó og sjónvarp

Kristen Stewart smeyk við hlutverkið

Ugla Egilsdóttir skrifar
Kristen Stewart.
Kristen Stewart.
Kristen Stewart er smeyk við hlutverkið sem hún er að fara að leika á móti kærasta Jennifer Lawrence. Nicholas Hoult og Kristen Stewart hafa verið ráðin til að leika elskhuga í kvikmyndinni Equals.

Kristen segist vera óttaslegin. Handritið hafi að geyma epíska ástarsögu og hún viti ekki hvort hún ráði við hlutverkið.

Hún segist hafa reynt að útskýra fyrir leikstjóranum að hún gæti ekki valdið hlutverkinu, en leikstjórinn ekki viljað hlusta á það.

Jennifer Lawrence var upphaflega boðið hlutverkið en hafnaði því. Hún er víst ekki hrifin af Kristen Stewart, og var ekki sátt þegar hún komst að því að hún endaði í rullunni á móti kærastanum hennar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×