Bíó og sjónvarp

Það versta sem Hollywood hefur uppá að bjóða

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Johnny Depp er tilnefndur fyrir The Lone Ranger.
Johnny Depp er tilnefndur fyrir The Lone Ranger.
Tilnefningar til Golden Raspberry-verðlaunanna, sem oftast eru kölluð Razzie-verðlaunin, voru afhjúpaðar í dag en tilgangur verðlaunanna er að minnast þess versta sem Hollywood bauð uppá á síðasta ári. Tímasetningin er góð þar sem tilnefningar til Óskarsverðlaunanna verða tilkynntar á morgun.

Sumar stjörnur lenda nú á lista Razzie-verðlaunanna í fyrsta sinn, til dæmis Johnny Depp, Naomi Watts og Selena Gomez. Auðvitað er vöðvafjallið Sylvester Stallone meðal tilnefndu en hann hefur verið tilnefndur alls 31 sinni.

Leikkonan Halle Berry er einnig tilnefnd en hún tók því létt þegar hún hlaut verðlaunin árið 2006 fyrir hlutverk sitt í Catwoman og mætti meira að segja á verðlaunaafhendinguna sem er fátítt.

Hér er listi yfir helstu tilnefningar:

Versta mynd:

After Earth

Grown-Ups 2

The Lone Ranger

A Madea Christmas

Movie 43

Versti leikari:

Johnny Depp, The Lone Ranger 

Ashton Kutcher, Jobs

Adam Sandler, Grown-Ups 2 

Jaden Smith, After Earth 

Sylvester Stallone, Bullet To The Head, Escape Plan og Grudge Match

Versta leikkona:

Halle Berry, The Call og Movie 43 

Selena Gomez, Getaway

Lindsay Lohan, The Canyons 

Tyler Perry, A Madea Christmas 

Naomi Watts, Diana and Movie 43






Fleiri fréttir

Sjá meira


×