Körfubolti

Bulls með sigur á Magic eftir þríframlengdan leik

Stefán Árni Pálsson skrifar
Joakim Noah var flottur í liði Bulls í nótt.
Joakim Noah var flottur í liði Bulls í nótt. nordicphotos/getty
Chicago Bulls vann frábæran sigur á Orlando Magic, 128-125, eftir þríframlengdan leik í NBA-körfuboltanum í nótt. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 101-101 og framlengja þurfti leikinn.

Eftir fyrstu framlengingu var staðan aftur jöfn 111-111. Þegar nokkrar sekúndur voru eftir af annarri framlengingu var staðan 119-116 fyrir Bulls. Þá kom í hlut Glen Davis að jafna metin fyrir Orlando Magic þegar hann setti niður þriggja stiga skot.

Bulls voru sterkari í þriðju framlengingunni og unnu að lokum þriggja stiga sigur 128-125.

Joakim Noah var atkvæðamestur í liði Bulls með 26 stig en Victor Oladipo gerði 35 stig fyrir Orlando Magic.

Svipmyndir úr leiknum og fleiri leikjum næturinnar má sjá í myndbandi hér að neðan.

Meistararnir í Miami Heat töpuðu sínum þriðja leik í röð í nótt þegar liðið sótti Washington Wizards heim. Leiknum leik með öruggum sigri heimamanna 114-97.

LA Lakers tapaði sínum sjötta leik í röð fyrir Phoenix Suns, 121-114. Gerald Green skoraði 28 stig fyrir Suns en hjá Lakers var Pau Gasol atkvæðamestur með 24 stig.

Úrslitin næturinnar:

LA Clippers – Dallas Mavericks 129-127

Boston Celtics - Toronto Raptors 88-83

Milwaukee Bucks – Memphis Grizzlies 77-82

San Antonio Spurs – Utah Jazz  109-105

Portland Trail Blazers - Cleveland Cavaliers 108-96

Golden State Warriors – Denver Nuggets 116-123

Washington Wizzards - Miami Heat 114-97

Phoenix Suns - LA Lakers 121-114

Philadelphia 76ers – Charlotte Bobcats 95-92

Orlando Magic - Chicago Bulls 125-128

New Orleans Pelicans - Houston Rockets 100-103

Minnesota Timberwolves – Sacramento Kings 108-111

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×