Íslenski boltinn

Ásgeir Börkur kynntur til sögunnar hjá GAIS

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Sænska B-deildarliðið GAIS tilkynnti á heimasíðu sinni í dag að félagið hafi gengið frá samningum við Árbæinginn Ásgeir Börk Ásgeirsson.

Ásgeir Börkur er 26 ára gamall og rann samningur hans við Fylki út í haust. Hann hefur einnig spilað með Selfossi og Sarpsborg á ferlinum og stefndi leynt og ljóst að því að komast út.

Honum er líkt við Gennaro Gattuso á heimasíðu GAIS enda þekktur fyrir að vera harður í horn að taka.

GAIS varð í sjöunda sæti sænsku B-deildarinnar í haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×